Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Verð á jólamat hækkar mikið milli ára

Verð á jólamat hækkar í miklum meirihluta tilfella milli ára og í flestum tilfellum er um miklar verðhækkanir að ræða. Verð á þeim vörum sem voru til skoðunar í könnunum verðlagseftirlits ASÍ fyrir jól 2021 og 2022 hækkaði í 81% tilfella en lækkaði í 19% tilfella. Í 16% tilfella hækkaði verð á bilinu 0-5%, í 19% tilfella um 5-10% og í 18% tilfella um 10-15%. Miklar verðhækkanir voru í öllum vöruflokkum en verð á kjöti, kaffi, brauð- og kornvöru og þurrvöru og dósamat hækkaði mest. Verð á mjólkurvöru hækkaði einnig mikið en lágt hlutfall vara í þeim vöruflokki lækkaði í verði eða hækkaði lítið í verði milli ára.

Verð hækkaði mest hjá Heimkaup og næst mest í Iceland en hátt hlutfall vara í þessum verslunum hækkaði mikið í verði milli ára. Verð á jólamat hækkaði hins vegar minnst í Kjörbúðinni, Nettó og Fjarðarkaupum en þær verslanir voru með hæsta hlutfall vara sem lækkaði í verði og hækkaði minnst í verði.

Mestar verðhækkanir hjá Heimkaup og Iceland

Verð á jólamat hækkar mest í Heimkaup en þar hækkar verð í 68% tilfella yfir 15%. Þannig hækkar fjórðungur vara í Heimkaup um 15-20%, 19% vara um 20-30% og annar fjórðungur vara hækkar yfir 30% í verði. Næst mest hækkar verð í Iceland, yfir 15% í 51% tilfella og yfir 20% í 36% tilfella.

Verð lækkar oftast hjá Kjörbúðinni og Nettó

Verð lækkaði oftast í Kjörbúðinni, í 36% tilfella og næst oftast í Nettó eða í 32% tilfella. Í Iceland lækkaði verð í 26% tilfella og í 20% tilfella hjá Hagkaup. Ef litið er til þess hversu mikið verð hækkaði má sjá að verð í Fjarðarkaup hækkaði minna en í mörgum öðrum verslunum. Þar hækkaði stærstur hluti vara eða 29% um 0-5% auk þess sem 15% vara lækkaði í verði. Þar á eftir kemur Nettó með 18% vara sem hækka um 0-5% í verði. Hlutfall vara sem annaðhvort lækkaði í verði eða hækkaði um 0-5% er hæst í Kjörbúðinni, 51%, næst hæst í Nettó, 49% og þriðja hæst í Fjarðarkaupum, 44%.

Í Bónus og Krónunni hækkaði stærstur hluti vara í verði á bilinu 5-10% eða 29% vara í Bónus og 28% í Krónunni. Svipað hlutfall vara hækkaði um 10-15% í verði eða 29% í Bónus og 26% í Krónunni. Í báðum verslunum hækkaði verð yfir 15% í 18% tilfella og yfir 20% í 9% tilfella.

Verð á kjöti, þurrvöru og dósamat og brauð- og kornvöru hækkar mest

Miklar verðhækkanir eru í öllum vöruflokkum en verð á kjöti hækkar mest milli ára. Í 39% tilfella hækkar verð á kjöti um 20-30% og í 11% tilvika um 30-40%. Sem dæmi má nefna 27-33% verðhækkun á SS birkireyktum hangikjötsframparti í fjórum af fimm verslunum sem varan fékkst í. Þá hækkar verð á léttreyktum KEA lambahrygg um 25-26% í fimm verslunum og verð á KEA hangilæri minnst um 4,8% en á bilinu 18-41% í öðrum verslunum.

Verð á brauði og kornvöru hækkar oft mikið milli ára og sama má segja um verð á þurrvöru og dósamat þó verð í báðum flokkum lækki einnig í sumum tilfellum. Sem dæmi má nefna 12-27% verðhækkanir á brúnni Myllu jólatertu með kremi og 6,5-22% verðhækkanir á Myllu heimilisbrauði. Þá hækkar verð á Ora grænum baunum á bilinu 14-29%. Verð á mjólkurvöru hækkar einnig almennt mikið eða í 74% tilfella um 5-20%. Algengast var að verðhækkanir væru á bilinu 9-13%.

Verð á drykkjarvöru þ.e. gosi og safa hækkar hvað minnst en það sama gildir ekki um verð á kaffi sem hækkar í 50% tilvika á bilinu 15-30%. Þannig hækkar verð á Te og kaffi kaffipúðum t.d. um 17-28% milli ára og verð á möluðu jólakaffi um 15-28%.

Konfekt og sælgæti hækkar einnig minna í verði en flestir aðrir vöruflokkar en hækkar þó mikið í verði í sumum tilfellum. Þannig hækkar verð á 800 gr. Nóa Siríus innpökkuðum konfektkassa t.d. um 12-26,5% í sex verslunum og verð á 2 kg dós af Quality Street um 15-26% í fjórum verslunum. Grænmeti og ávextir er sá vöruflokkur sem verð lækkaði oftast í en að sama skapi sá vöruflokkur sem hvað mestar verðhækkanir voru í en miklar sveiflur geta verið í verði á grænmeti og ávöxtum.

Verðkönnun á jólamat 2022 https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/frettir/verdlagsfrettir/litill-munur-a-verdi-a-jolamat-milli-bonuss-og-kronunnar/

Verðkönnun á jólamat 2021 https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/frettir/verdlagsfrettir/50-100-munur-a-haesta-og-laegsta-kiloverdi-af-jolasteikinni/

 

Um úttektina

Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breytingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftirlits ASÍ frá 15. desember 2021 og 13. desember 2022. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreytingar einstakra vara. Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Nettó, Bónus, Krónunni, Fjarðarkaupum, Iceland, Hagkaup, Kjörbúðinni og á Heimkaup.is.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Tengdar fréttir