Verðlag á matvöru lækkar frá júlímánuði samkvæmt greiningu verðlagseftirlitsins, í fyrsta sinn frá undirritun kjarasamninga. Þessi þróun var komin vel á leið fyrir opnun nýrrar lágvöruverðsverslunar, Prís, um helgina.
Verðlag í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni hækkaði umtalsvert í júlí eins og verðlagseftirlitið benti á í nýlegri verðkönnun. Verðlag þar lækkaði hins vegar í ágúst. Verðlag í Bónus hækkar lítillega frá fyrri mánuði og í Hagkaup stóð það í stað milli mánaða. Sé litið yfir lengra tímabili sést að verðlag í Krónunni hefur frá undirritun kjarasamninga hækkað minna en í Bónus.
Verðlækkanir í verslunum Samkaupa
Frá undirritun kjarasamninga hefur hækkun á verðlagi matvöru verið 0,2-0,7% á mánuði. Óvenjumikil hækkun mældist á matvöru síðasta mánuði, um 0,7%. Skýrðist sú hækkun að mestu af hækkunum í verslunum Samkaupa. Nýjustu mælingar verðlagseftirlitsins benda til þess að verðlag hafi lækkað um 0,2% milli júlí og þess sem af er ágústmánaðar.
Verð í Nettó lækka í mörgum flokkum – mest hækka gæludýravörur, um 0,9%, en langflestir flokkar lækka, þeirra mest flokkur léttmjólkur, um 4,4%.
Mestar verðhækkanir í Bónus frá kjarasamningum
Yfir sumarmánuðina, frá maí til dagsins í dag, hefur verðlag hækkað mest í Bónus. Hástökkvari sumarsins í Bónus er Arla Havarti 300gr ostur, sem hefur hækkað um 67%. Aðrar vörur sem hafa hækkað mikið eru:
- Kiwi í lausu: 30%
- Hornafjarðar rauðar kartöflur, 1kg: 25%
- SFG gulrætur, 500gr: 25%
- Hellman’s dressing, 250ml: 24%
- Freyju Rís, 70gr: 22%
- Stjörnugrís grísasnitsel, kílóverð: 9,5%
Þeir flokkar sem vega mest í verðlagshækkun Bónus yfir sumarið eru ávextir, kjöt, fiskur og sælgæti.
Áhrif af Prís ekki komin fram
Um helgina opnaði lágvöruverðsverslunin Prís. Samkvæmt fyrstu athugun verðlagseftirlitsins á opnunardegi var Prís með lægra verð en Bónus og Krónan í um 96% tilfella. Í yfir 10% tilfella var munurinn meira en 10% og í meira en fjórðungi tilfella yfir 5%. Samdægurs voru verð á MS ostum lækkuð í Bónus, niður að verðinu sem bauðst í Prís.
Áhrifin af opnun Prís eru ekki komin fram nema að örlitlu leyti í vísitölum verðlagseftirlitsins, enda var verslunin opnuð í blálok tímabilsins sem hér er til skoðunar.
Um könnunina
Verðlagsbreytingar eru reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal.
Við verðsamanburð eru skoðuð meðalverð sérhverrar vöru yfir mánuðinn (eða 6-13. mars þegar borið er saman við undirritun kjarasamninga) og borin saman við meðalverð mánuðarins á undan. Breytingar eru svo vegnar útfrá mikilvægi vöruflokka. Fjöldi samanburða í hverjum mánuði er um eða yfir 20.000.