Viðbótarstuðningur við aldraða

Höfundur

Ritstjórn
Félagslegum viðbótarstuðningi er ætlað að styrkja framfærslu aldraðra sem búsettir eru hér á landi og eiga engin eða takmörkuð lífeyrisréttindi í almannatryggingum.
 
Hverjir geta sótt um?
  • Einstaklingar sem eru 67 ára eða eldri, hafa fasta búsetu og skráð lögheimili hér á landi og sem dvelja varanlega á Íslandi. Erlendir ríkisborgarar geta átt rétt á viðbótarstuðningi að uppfylltum nánari skilyrðum.
 
Í hverju fellst stuðningurinn?
  • Félagslegur viðbótarstuðningur getur mest orðið 90% af fullum ellilífeyri almannatrygginga. Einstaklingar geta einnig átt rétt á 90% af mánaðarlegri fjárhæð heimilisuppbótar.
  • Allar tekjur greiðsluþega koma til frádráttar fjárhæð mánaðarlegs viðbótarstuðnings utan 25.000 kr. frítekjumarks á mánuði.
  • Umsækjandi verður að hafa sótt um og tekið út að fullu öll réttindi sem hann kann að eiga eða hafa áunnið sér. Þetta á m.a. við um launatengd réttindi, greiðslur almannatrygginga og félagsleg aðstoð ríkisins sem og atvinnutengdar iðgjaldatengdar lífeyrisgreiðslur hjá íslenskum og erlendum aðilum.
 
Hvernig er umsóknarferlið?
  • Sótt er um rafrænt í gegnum Mínar síður á heimasíðu Tryggingastofnunar, www.tr.is. (Til þess að skrá sig inn á Mínar síður þurfa umsækjendur að hafa annað hvort rafræn skilríki eða Íslykil frá Þjóðskrá Íslands).
  • Mögulegt er að sækja um þrjá mánuði aftur í tímann. (Til 31. janúar 2021 er hægt að sækja um viðbótarstuðning frá gildistöku laganna, 1. júlí 2020).

    Afgreiðsla umsókna tekur allt að fjórum vikum. Í kjölfar umsóknar á Mínum síðum er umsækjandi boðaður í viðtal hjá Tryggingastofnun.

 
Nánari upplýsingar og umsókn má finna á heimasíðu Tryggingastofnunar
 

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson
  • Engar tryggingar í frumvarpi um verð á raforku til almennings

    Stjórnvöld taki ekki tillit til sérstöðu raforkumála á Íslandi Alþýðusamband…

    Ritstjórn

    26. mar 2025