Viðmið um hámarkstekjur og eignir hjá Bjargi hækka

Höfundur

Ritstjórn

Alþingi hefur samþykkt reglugerðarbreytingu þar sem hámarksviðmið um tekjur og eignir vegna almennra íbúða eru hækkuð. Breytingin tók gildi þann 1. janúar 2020.

Hámarksviðmið eru nú eftirfarandi:

6.420.000 kr. ári, fyrir skatta (eða 535.000 kr. á mánuði) fyrir hvern einstakling.
8.988.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 749.000 kr. á mánuði) fyrir hjón og sambúðarfólk.
1.605.000 kr. á ári, fyrir skatta (eða 133.750 kr. á mánuði) fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu.
Þá má heildareign heimilis ekki vera hærri en 6.930.000 kr.

Bjarg íbúðafélag fagnar þessum breytingum sem veita fleiri einstaklingum og fjölskyldum kost á hagkvæmu og öruggu leiguhúsnæði. Opið er fyrir nýjar skráningar samkvæmt nýju tekjuviðmiði á vef Bjargs.

Þá munu virkir umsækjendur sem áður höfðu fengið höfnun vegna of hárra tekna eða eigna, en falla nú undir ný viðmið munu fá boð um íbúð eftir því sem þær standa til boða.

Á næstu dögum og vikum mun Bjarg opna fyrir umsóknir á fjórum nýjum stöðum, þ.e. í Hraunbæ, Kirkjusandi, Guðmannshaga (Akureyri) og í Silfratjörn í Úlfarsárdal. Nú þegar er opið fyrir umsóknir vegna leiguíbúða í Þorlákshöfn.

Nánari upplýsingar um nýjar íbúðir og skilyrði fyrir úthlutun má finna á heimasíðu Bjargs.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026