Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2022

Höfundur

Ritstjórn

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2022 verður kynnt á opnum fundi í húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni 21, 4. hæð, kl. 10, mánudaginn 11. júlí. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum.

Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahagsmála og launa á samningstímabilinu sem lýkur senn, þ.e. frá apríl 2019 til janúar 2022.

Meðal helstu niðurstaðna er:

  1. Hagvöxtur var um 4% á samningstímabilinu en gert var ráð fyrir 10% vexti í upphafi þess. Hagvöxtur á hvern íbúa var neikvæður um 4%.
  2. Fjárhagsstaða heimilanna er óvenju sterk og tekjur háar í alþjóðlegum samanburði.
  3. Áhrif stríðsins í Úkraínu á innlenda efnahagsþróun virðast tiltölulega lítil miðað við aðrar þjóðir, að minnsta kosti til skamms tíma.
  4. Alls voru gerðir 326 kjarasamningar í samningalotunni, þ.a. 189 í einkageiranum og 137 í opinbera geiranum.
  5. Grunntímakaup hækkaði um tæp 23% á vinnumarkaðnum í heild, rúm 21% á almenna markaðnum og um tæp 30% hjá Reykjavíkurborg. Hluta hækkunarinnar má rekja til styttingar vinnuvikunnar, á bilinu 1,3%-4,1%.
  6. Heildarlaun á árinu 2021 voru 823 þús. krónur á mánuði að jafnaði hjá fullvinnandi fólki. Þau voru 681 þús. krónur hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur en 903 þús. krónur hjá starfsfólki ríkisins.
  7. Laun kvenna hafa í flestum tilfellum hækkað meira en karla. Á vinnumarkaðnum í heild eru fullvinnandi konur með um 86% af heildarlaunum fullvinnandi karla. Munurinn er mestur hjá ríki þar sem konur eru með tæp 86% af heildarlaunum karla og minnstur munur er hjá Reykjavíkurborg þar sem fullvinnandi konur eru með tæp 95% af heildarlaunum fullvinnandi karla.

Kjaratölfræðinefnd er samstarfsvettvangur um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félags- og vinnumálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Vorskýrslan 2022 er fjórða skýrsla nefndarinnar, en hún gefur út tvær skýrslur ár hvert – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn eru aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar www.ktn.is. Það er von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel við mat á kjaraþróun og við undirbúning komandi kjarasamninga.

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.