Vöruflokkar allt að 12% ódýrari í Prís en Bónus 

Höfundur

Ritstjórn

Vörur í Prís eru 4% ódýrari en í Bónus að meðaltali og einstakir vöruflokkar eru allt að 12% ódýrari samkvæmt athugun sem verðlagseftirlitið framkvæmdi um helgina. Rúmlega 500 vörur sem seldar eru í báðum verslununum voru bornar saman og var verð jafnt á einni vöru, 25% lægra í Bónus á fjórum vörum og 0,2-48% lægra í Prís á 509 vörum. 

Mestu munar á heimilisbrauði 

Stærsti verðmunurinn var á stóru heimilisbrauði Myllunnar, sem er tæplega helmingi ódýrara í Prís en í Bónus. Sá mikli munur skýrir hvers vegna verðbil milli Prís og Bónus er að meðaltali mest í flokknum brauð, eða tæp 12%. Aðrir flokkar sem eru umtalsvert ódýrari í Prís en Bónus eru sælgæti og snakk (7,9%), kaffi (7,8%) og gos (6,4%). 

Þær fjórar vörur sem eru ódýrari í Bónus eru allar sósur frá Blå Bland – Aioli, grísk sósa, mexíkósk sósa og bernaise sósa. Þær kostuðu allar 298kr í Bónus en 399kr í Prís.  

Prís er enn ódýrasta verslunin í reglulegum samanburði verðlagseftirlitsins og hefur verið það frá opnun. Verð þar var í janúar að meðaltali 1,93% yfir lægsta verði, en í Bónus að meðaltali 3,81% yfir lægsta verði. 

Fjórar lágvöruverðsverslanir – Prís langlægst 

Prís sker sig úr og er, líkt og við opnun, nokkru undir verði annarra lágvöruverðsverslana. Sé miðað við að lágvöruverðsverslanir séu að meðaltali innan 10% frá lægsta verði, þá telja þær Prís, Bónus, Krónuna og Nettó. 

Þegar skoðaðar eru þær 280 vörur sem fundust hjá öllum fjórum sést að Prís er 0,2% yfir lægsta verði að meðaltali en Bónus, Krónan og Nettó nær hvert öðru en Prís, milli 4,5-6,9% yfir lægsta verði að meðaltali. 

Tengdar fréttir

  • Páskaeggin hækka minnst í Prís og Fjarðarkaupum

    Ódýrustu páskaeggin er að finna í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ.…

    Ritstjórn

    26. mar 2026

  • Framlegðarhlutur olíufélaga hækkaði frá 2022 þrátt fyrir hagfelldari þróun

    Ný greining hagsviðs ASÍ, á bensínverðum, bendir til þess að…

    Ritstjórn

    19. mar 2026

  • Verð á matvöru hækkar enn á ný  

    Vörukarfa Verðlagseftirlits ASÍ hækkaði um 0,68%, í verði milli febrúar og mars, og nemur…

    Ritstjórn

    18. mar 2026