Lækkun virðisaukaskatts skilað sér að fullu hjá öllum nema Costco

Höfundur

Ritstjórn

Í lok apríl tóku í gildi lög um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum (skatthlutfall eldsneytis). Lagabreytingin var hluti af tímabundnum efnahagsaðgerðum til að hemja verðbólgu. Breytingin fól meðal annars í sér að virðisaukaskattur við innflutning og skattskylda sölu á eldsneyti lækkar úr 24% í 11% frá 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026.

Samkeppniseftirlitinu var falið að vakta útsöluverð eldsneytis sérstaklega, á meðan þessari tímabundnu ráðstöfun stendur, auk þess sem eftirlitinu eru veittar sérstakar valdheimildir til að knýja á um að lækkun virðisaukaskatts skili sér í endanlegu útsöluverði eldsneytis. ASÍ fagnaði viðleitni stjórnvalda, í umsögn sinni, og lýsti yfir stuðningi við þær heimildir sem frumvarpið veitti Samkeppniseftirlitinu.

Lækkun virðisaukaskatts skilað sér hjá flestum

Hagdeild ASÍ athugaði bensínverð á 246 afgreiðslustöðvum allra sex smásala eldsneytis hér á landi.I Athugunin náði frá gildistöku laganna (29. apríl 2026) til 2. maí 2026 og tók til bæði 95 oktana bensíns og dísilolíu. Hafi útsöluverð lækkað um a.m.k. 10,48% telst lækkunin hafa skilað sér, annars ekki.

  Fjöldi stöðva
AtlantsolíaSkilaði VSK-lækkun að fullu24
Costco IcelandSkilaði ekki að fullu1
N1Skilaði VSK-lækkun að fullu82
OlísSkilaði VSK-lækkun að fullu19
OrkanSkilaði VSK-lækkun að fullu73
ÓBSkilaði VSK-lækkun að fullu47

Athugunin bendir til þess að lækkun virðisaukaskattshlutfalls hafi skilað sér að fullu hjá hefðbundnu olíufélögunum. Orkan reið á vaðið og lækkaði verð á sínum stöðvum strax í kjölfar gildistöku laganna (29. apríl). Lækkanir annarra skiluðu sér síðar, og þá jafnan að fullu. Undantekningin þar á var Costco hvar bensín lækkaði ekki nema um 7,8% og dísilolía um 8,6%. Costco hefur hingað til boðið ódýrustu kjörin á eldsneyti, og gerir enn. Hins vegar hafa verðhækkanir fyrirtækisins, það sem af er ári, verið umtalsvert umfram aðra smásala, sbr. fyrri úttekt ASÍ. Af því leiðir að bilið milli Costco og annarra smásala hefur dregist saman.

Eins og línuritið ber með sér býður Costco alla jafna upp á lægsta verðið á eldsneyti. Myndin sýnir annars vegar meðal mun lægstu verða fyrirtækja frá verði Costco, og hins vegar verðbilið milli Costco og næst ódýrustu afgreiðslustöðvar, hverju sinni. Þar sem Orkan lækkaði verð í samræmi við breytingu á virðisaukaskatt hlutfalli strax við gildistöku laganna var eldsneyti þar ódýrara en hjá Costco í kringum síðustu mánaðarmót. Nú munar að meðaltali 8,3 krónum á lægsta verði hvers fyrirtækis og Costco, en var tæpar 17 krónur í byrjun árs. Ódýrasti valkostur, á eftir Costco er í dag um fjórum krónum dýrari, en var 12 krónum dýrari í byrjun árs.

StöðFyrirtækiVerð (kr.) 20. maíYfir Costco (kr.)
KauptúnCostco201
DalvegurOrkan2054
Baldursnes AkureyriAtlantsolía2054
Akureyri HlíðarbrautÓB2064
ReykjavíkurvegurN12087
AkureyriOlís22423

Hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra sveiflukenndur en lækkandi

Mat á hlut olíufélaganna í hverjum seldum lítra bendir til þess að álagning hafi almennt farið lækkandi síðustu vikur. II Þó ber að hafa í huga að ASÍ hefur áður bent á að álagning á eldsneyti hafi verið sögulega há í aðdraganda upptöku kílómetragjalds og lækkunar vörugjalda sem tók gildi í byrjun árs. Lækkunin fellur að hluta til saman við gildistöku tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti í lok apríl. Þó ber að hafa í huga að þróun eldsneytisverðs ræðst einnig af öðrum þáttum, svo sem heimsmarkaðsverði og gengi krónunnar. Sveiflur milli vikna og fyrirtækja eru því áfram nokkrar.


[I] Gasvaktin. (e.d.). Gögn um eldsneytisverð á Íslandi [Gagnasafn]. Sótt 20. maí 2026 af https://github.com/gasvaktin/gasvaktin.

[II] Yfirlit yfir opinber gjöld til ársins 2024 eru fengin frá Heimildinni. (2024). Excel-skrá fylgir með grein: Margt bendir til þess að bensínverð geti farið að hækka skarpt [Gagnaskjal]. Sótt af https://app.calculatorstudio.co/download/b4beac45-e51e-4d32-9a23-698fa4567b2e/3981e558-085d-42d1-aa0c-ecbfb2d58fcb. Gögn fyrir árið 2025 er fengin frá Skatturinn. (e.d.) Skattar og gjöld. Sótt 20. maí af https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/skattar-og-gjold/

U.S. Energy Information Administration. (e.d.). Weekly U.S. Product Supplied of Finished Motor Gasoline (psw11) [Gagnasafn]. Orkustofnun Bandaríkjanna. Sótt 20. maí 2026 af https://ir.eia.gov/wpsr/psw11.xls

Seðlabanki Íslands. (e.d.). Gengi: Bandaríkjadalur (daglegt miðgengi) [Gagnasafn]. Sótt 20. maí 2026 af https://www.cb.is/statistics/official-exchange-rate/https://www.cb.is/statistics/official-exchange-rate/

Tengdar fréttir

  • Verulegur munur á gjaldskrárhækkunum frístundaheimila milli sveitarfélaga

    Gjaldskrár frístundaheimila fyrir grunnskólabörn hafa tekið umtalsverðum breytingum undanfarin ár…

    Ritstjórn

    13. maí 2026

  • Bensínverð hækkar um 13% frá áramótum

    Vikumeðaltal lægstu bensínverða hefur hækkað um 24 krónur (tæp 13%)…

    Ritstjórn

    8. apr 2026

  • Páskaeggin hækka minnst í Prís og Fjarðarkaupum

    Ódýrustu páskaeggin er að finna í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ.…

    Ritstjórn

    26. mar 2026