Verðbólga hækkar þriðja mánuðinn í röð 

Höfundur

Ritstjórn

Vísitala neysluverð hækkaði um 1,39 prósentur milli mánaða í febrúar samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í byrjun vikunnar. Verðbólga á ársgrundvelli mælist nú 10,2%. Ef horft er fram hjá áhrifum húsnæðis mælist verðbólga 8,9% og hækkar um 1,81% milli mánaða. Verðbólga jókst þriðja mánuðinn í röð, umfram væntingar greiningaraðila. 

Dregið hefur verulega úr áhrifum húsnæðis á vísitölu neysluverðs en húsnæði, hiti og rafmagn hækkar aðeins um 0,25% (0,08% vísitölu áhrif) milli mánaða og þar af hækkar reiknuð húsaleiga, markaðsverð húsnæðis ásamt framlagi vaxtabreytinga, um aðeins 0,1% milli mánaða en greidd húsaleiga, sem lýsir leiguverði, hækkar um 0,9% á milli mánaða. 

Útsölulok hafa áhrif til hækkunar á vísitölunni

Verðmæling í febrúar einkennist jafnan af útsöluáhrifum sem ganga til baka ásamt því að nýjar vörur koma í sölu. Mest hækkaði verð á húsgögnum og heimilisbúnaði milli mánaða, eða um 8,7% (0,53% vísitölu áhrif) og verð á fötum og skóm um 6,8% (0,21% vísitölu áhrif). Ætla má að hluti af þessum hækkunum skýrist af útsölulokum en leita þarf til ársins 2013 til að finna febrúarhækkanir í líkingu við þær sem koma fram í mælingum Hagstofunnar nú í febrúar.  

Verðhækkkanir almennari en áður

Drifkraftar verðbólgu mánaða á milli er ólíkir þeim sem drífa áfram verðbólgu á ársgrundvelli. Dregið hefur úr áhrifum húsnæðis og bensíns og af verðmælingu í febrúar er ljóst að verðhækkanir eru orðnar almennari en áður. Matur og drykkjarvörur hækkuðu um 1,9% (0,3% vísitölu áhrif) í verði í febrúar, dagvara hækkar í verði um það sem nemur 2,1% milli mánaða og innfluttar vörur um 2,9%. Breidd verðbólgu hefur ekki verið meiri síðan á verðbólgutímabili eftir hrun en hátt í 90% af undirliðum vísitölu neysluverðs eru yfir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans.

Verðbólga á evrusvæðinu dregst saman en sú íslenska hækkar

Ásamt vísitölu neysluverðs í febrúar birtir Hagstofan samræmda vísitölu neysluverðs (HICP) í janúar. Samkvæmt samræmdri evrópskri neysluverðsvísitölu mælist verðbólga á ársgrundvelli á Íslandi 8,1% í janúar en til samanburðar mælist verðbólga á evrusvæðinu 8,6%. Verðbólga á evrusvæðinu hefur dregist saman síðustu þrjá mánuði, sem skýrist að mestu með lækkandi orkuverði, meðan sú íslenska hækkar.  

Í haust var verðbólga á Íslandi næstlægst í Evrópu á samræmdan mælikvarða en nú mælast 12 lönd með lægri verðbólgu en hér á landi. Verðbólga á Íslandi er sambærileg verðbólgu hinna Norðurlandanna.  

 

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.