#metoo-bylgjan og vinnustaðir

Höfundur

Ritstjórn

Félagsmálaskóli alþýðu, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins boða til hádegisfundar þar sem athyglinni verður beint að birtingarmyndum og áhrifum #metoo á vinnustaði. Hvernig á að fjalla um #metoo byltinguna á vinnustöðum? Hvað lærðum við af síðustu bylgju sem spratt fram í seinnihluta árs 2017 og hvernig hefur reynslan verið síðan þá? Hefur eitthvað breyst og hverjar eru orsakir þess að konur þurfa að stíga aftur fram og greina frá sárri reynslu?

Sólborg Guðbrandsdóttir, fyrirlesari og aktívisti, fjallar um upp úr hvaða jarðvegi yfirstandandi #metoo bylgja rís. Fríða Rós Valdimarsdóttir, teymisstjóri fræðslumála Eflingar, fjallar um samhengi ofbeldis og áreitni við jafnréttismál í víðari skilningi og greinir frá mikilvægum atriðum sem stjórnendur og samstarfsfólk á vinnustöðum þurfa að hafa í huga þegar samfélagsumræða um ofbeldi er í hámæli, ekki síst í ljósi þess að vinnustaðir geta bæði verið vettvangur ofbeldis og áreitni og inni á vinnustöðum geta verið bæði þolendur og gerendur. Að lokum ræðir Hulda Dóra Styrmisdóttir, verkefnastjóri á mannauðssviði Landsspítala, um viðbrögðin við síðustu #metoo bylgju og hvernig reynslan hefur verið að breyttu verklagi og breyttri umræðu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni. Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands stýrir fundinum.

Viðburðurinn er öllum opinn. Hann fer fram á íslensku og boðið er upp á túlkun á ensku.

Tengdar fréttir

  • Rótgróinn ójöfnuður hamlar félagslegu réttlæti

    13. 01.26 Þrátt fyrir miklar framfarir í menntun, verulegan árangur…

    Ritstjórn

    13. jan 2026

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025

  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025