Verðbólga 5,8% í júní

Höfundur

Ritstjórn

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% milli mánaða sem er minni mánaðarhækkun en fyrir ári síðan og því lækkar ársverðbólgan niður í 5,8%. Hækkun á kostnaði við eigin húsnæði vegur þyngst sem og árstíðarbundnar hækkanir á ýmsum liðum  tengdum ferðaþjónustu. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar minna eða um 0,41% milli mánaða og mælist 4% á ársgrundvelli. 

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8% milli mánaða og húsaleiga hækkaði einnig um 0,8%. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8% og liðurinn „annað vegna ökutækja“ hækkaði um 5,3% en það má rekja til verðhækkana á bílaleigubílum. Þá hækkaði verð á hótelum og veitingastöðum um 2,1% en stóran hluta af þeirri hækkun má rekja til 17% verðhækkunar á gistingu.  

Hækkanir á mat- og drykkjarvöru hafa einnig nokkur áhrif til hækkunar á vísitölunni en þar vegur þyngst 0,9% hækkun á brauði og kornvöru og 1,4% hækkun á sykri, súkkulaði og sælgæti.  

Liðurinn húsgögn og heimilisbúnaður lækkaði um 0,7% milli mánaða og föt og skór um 0,9% en það má rekja til tilboða í vöruflokkunum sem teygja sig nú yfir stærri hluta árs en áður. Þá hækkuðu húsnæðistryggingar um 3,3% milli mánaða og ábyrgðartryggingar um 2,5% en verð á bensíni og olíum lækkaði um 0,9% milli mánaða.

Tengdar fréttir

  • Ríkisstjórnin leitast við að veikja réttindi launafólks í vaxandi atvinnuleysi 

    Atvinnuleysi fer nú vaxandi samkvæmt öllum helstu mælikvörðum, sem bendir til minni spennu…

    Ritstjórn

    26. mar 2026

  • Miklar hækkanir á matvöru og verðbólga umfram væntingar

    Febrúarmæling Vísitölu neysluverðs er 0,94% hærri, en mánuðinn á undan. Sé horft til…

    Ritstjórn

    26. feb 2026

  • Miðstjórn ASÍ lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í…

    Ritstjórn

    18. feb 2026