Meirihluti landsmanna telur aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu frekar eða mjög slæma fyrir almenning. Um þriðjungur er á öndverðri skoðun.
Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun Alþýðusambands Íslands (ASÍ).
Spurt var: Telur þú að aukin einkavæðing í heilbrigðiskerfinu sé góð eða slæm fyrir almenning?
Lítill munur reyndist á svörum eftir kyni, búsetu eða menntastigi.
Hins vegar reyndist langmestur stuðningur við einkavæðingu í hópi þeirra tekjuhæstu. Þar kvaðst 51% telja aukna einkavæðingu mjög eða frekar góða fyrir almenning en 35% voru því ósammála.
Hér má sjá frekari greiningu á niðurstöðunni.
Um könnunina:
Gallup framkvæmdi könnunina 12.-23. september 2024.
Þetta var netkönnun sem náði til 1.722 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, sem handahófsvaldir voru úr Viðhorfahópi Gallup.
Stærð úrtaks og svörun:
Úrtak: 1,722
Svara ekki: 851
Fjöldi svarenda: 871
Þátttaka: 50,6%