Efling vísar kjaradeilu við Reykjavíkurborg til sáttasemjara

Höfundur

Ritstjórn

Efling – stéttarfélag hefur séð sig knúið til að vísa kjaradeilu félagsins við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar sendi ríkissáttasemjara skriflega tilkynningu þess efnis síðdegis í gær, 16. september. Efling lítur svo á að viðræður við Reykjavíkurborg hafi reynst árangurslausar en þær hafa staðið síðan í febrúar á þessu ári. Kjarasamningurinn sem í hlut á rann út þann 31. mars síðastliðinn.

Eitt helsta ágreiningsmálið í viðræðunum felur í sér kröfu um styttingu vinnuvikunnar. Reykjavíkurborg hefur lýst því yfir að tilraunaverkefni á þessu sviði hafi skilað jákvæðum árangri. Engu að síður hefur ekki náðst viðunandi árangur í samtali þar um milli deiluaðila. Þá hefur Eflingu ekki tekist að koma að ýmsum öðrum þáttum í kröfugerð sinni.

„Við erum með öfluga, fjölmenna og samhenta samninganefnd skipaða fólki með mikla starfsreynslu hjá borginni. Hún var einróma sammála því að vísa viðræðum, af þeirri einföldu ástæðu að kröfugerðin okkar sem skrifuð var með almennum félagsmönnum fæst í raun ekki rædd,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. „Okkur þykir miður að hafa ekki skynjað raunverulegan samningsvilja frá borginni í þessum viðræðum. Með því að vísa vonumst við til að breyta því.“

Tengdar fréttir

  • Aðgerðir tengdar kjarasamningum taka gildi

    Við gerð kjarasamninga gerði verkalýðshreyfingin kröfur á stjórnvöld um aðgerðir…

    Ritstjórn

    5. jún 2024

  • Mikill stuðningur við kjarasamning SGS og SA

    Kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur verið…

    Ritstjórn

    19. des 2022

  • Vörukarfa ASÍ hækkaði í 6 af 8 verslunum á 6

    Á 6 mánaða tímabili, frá lokum mars 2021 fram í…

    Ritstjórn

    15. okt 2021