Félagsdómur dæmir ferðaþjónustufyrirtæki fyrir brot á lögum um stéttarfélög

Höfundur

Ritstjórn

Félagsdómur hefur dæmt ferðaþjónustufyrirtækið Hvalvörðugilslæk ehf. til greiðslu sektar fyrir brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, eftir að starfsmanni var hótað uppsögn vegna stéttarfélagsaðildar.

Málið snéri að því að starfsmaður fyrirtækisins, sem hafði óskað eftir aðild að Verkalýðsfélagi Suðurlands, fékk send skilaboð frá eiganda fyrirtækisins þar sem honum var tjáð að hann myndi missa starf sitt héldi hann sig við þá ákvörðun. Nokkrum dögum síðar var honum sagt upp störfum án rökstuðnings.

Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði með framgöngu sinni brotið gegn a-lið 4. gr. laga nr. 80/1938 og gegn stjórnarskrárvörðum réttindum starfsmannsins. Dómurinn taldi ljóst að uppsögnin væri beintengd stéttarfélagsaðildinni og dæmdi fyrirtækið til að greiða 1,3 milljón króna sekt í ríkissjóð og 600 þúsund krónur í málskostnað.

Alþýðusamband Íslands lýsir yfir ánægju með niðurstöðuna og segir dóminn draga skýra línu um ófrávíkjanleg réttindi launafólks til að ganga í stéttarfélög. ASÍ hefur áður varað við því að tilhneiging sé víða til að grafa undan félagslegum réttindum starfsfólks, og telur að niðurstaða dómsins sé mikilvæg áminning um að slíkt verði ekki látið óátalið. Samtökin telja dóminn hafa almennt gildi og vonast til að hann leiði til aukinnar meðvitundar um mikilvægi félagslegra réttinda á vinnumarkaði.

Fréttaskýringaþátturinn Þetta helst á Rás 1 fjallaði um málið á síðasta ári. Þá umfjöllun má nálgast hér.

Tengdar fréttir

  • Óásættanleg framkoma í garð trúnaðarmanna í ræstingum

    Í tilefni af sláandi viðtali við trúnaðarmann Eflingar stéttarfélags hjá…

    Ritstjórn

    21. feb 2025

  • Tökum til hendinni

    Starfsaðstæður ræstingafólks hafa verið til umræðu undanfarna daga í kjölfar…

    Kristín Heba Gísladóttir

    21. feb 2025

  • Við fordæmum siðlausa framgöngu gagnvart ræstingafólki – Yfirlýsing ASÍ, SGS

    ENGLISH VERSION BELOW Stéttarfélögum víðsvegar um land bárust þær fregnir…

    Ritstjórn

    20. feb 2025