Kynningarfundur kjaratölfræðinefndar í dag

Höfundur

Ritstjórn

Í dag klukkan 11.00 kynnir kjaratölfræðinefnd sína fyrstu skýrslu, Samningalotan 2019-2020, fyrir aðilum vinnumarkaðarins og strax í kjölfarið birtist hún opinberlega. Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum þetta streymi.

Skýrslan skiptist í fjóra meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, umgjörð kjarasamninga, gerða kjarasamninga í yfirstandandi kjaralotu og mælingar Hagstofu Íslands á launaþróun sem flokkaðar eru eftir heildarsamtökum launafólks og launagreiðenda.

Í efnahagskafla er farið yfir áhrif kórónukreppunnar á efnahag og vinnumarkað og samanburður gerður á efnahagsspám fyrir og eftir heimsfaraldurinn. Viðbrögðum stjórnvalda er lýst og ljósi varpað á tvær nýlegar kreppur.

Meginefni skýrslunnar er um breytingar og dreifingu launa í yfirstandandi samningalotu samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Fjallað er um helsta inntak kjarasamninga, þ.á.m. launabreytingar og styttingu vinnutíma.

Í kafla um umgjörð kjarasamninga er lýst skipulagi samtaka á vinnumarkaði, lagaumhverfi og hlutverki ríkissáttasemjara. Þá fylgir skýrslunni yfirlit yfir gerða kjarasamninga.

Kjaratölfræðinefndin var skipuð af félags- og barnamálaráðherra 21. nóvember 2019 og samkvæmt skipunarbréfi skal hún draga saman og vinna úr talnaefni um launa- og efnahagsmál til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Markmiðið er að stuðla að sameiginlegum skilningi á eðli, eiginleikum og þróun hagtalna sem mestu varða við gerð kjarasamninga. Áformað er að skýrslur nefndarinnar komi út tvisvar á ári.

Aðild að kjaratölfræðinefnd eiga forsætisráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, BSRB, Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins og Hagstofa Íslands.

„Fyrsta skýrsla kjaratölfræðinefndar er unnin við þær óvenjulegu aðstæður að hraðar og miklar breytingar eru að verða á högum launafólks vegna kórónuveirufaraldursins. Það er von okkar að skýrslan nýtist samtökunum vel við mat á stöðu félagsmanna sinna,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, formaður kjaratölfræðinefndar.

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025