Meirihluti andvígur aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu 

Höfundur

Ritstjórn

Meirihluti landsmanna telur aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu frekar eða mjög slæma fyrir almenning. Um þriðjungur er á öndverðri skoðun.  

Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun Alþýðusambands Íslands (ASÍ).  

Spurt var: Telur þú að aukin einkavæðing í heilbrigðiskerfinu sé góð eða slæm fyrir almenning?  

Lítill munur reyndist á svörum eftir kyni, búsetu eða menntastigi.  

Hins vegar reyndist langmestur stuðningur við einkavæðingu í hópi þeirra tekjuhæstu. Þar kvaðst  51% telja aukna einkavæðingu mjög eða frekar góða fyrir almenning en 35% voru því ósammála.  

Hér má sjá frekari greiningu á niðurstöðunni.  

Um könnunina: 

Gallup framkvæmdi könnunina 12.-23. september 2024.  

Þetta var netkönnun sem náði til 1.722 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, sem handahófsvaldir voru úr Viðhorfahópi Gallup.  

Stærð úrtaks  og svörun: 
Úrtak: 1,722 
Svara ekki: 851 
Fjöldi svarenda: 871 
Þátttaka: 50,6% 

Tengdar fréttir

  • Hækkun komugjalda í heilbrigðisþjónustunni vond skilaboð til launfólks 

    Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt um 100% hækkun á komugjaldi sjúklinga í heilsugæslu þann 1. ágúst…

    Ritstjórn

    7. júl 2026

    peningaseðlar
  • Aðgengi að heilbrigðisþjónustu

    Gögn frá Eurostat og Hagstofu Íslands benda til þess að aðgengi að…

    Steinunn Bragadóttir

    28. maí 2026

    a large building under construction
  • Sálfélagsleg áhætta í starfi  – rúmlega 840.000 dauðsföll á ári

    Nýjar niðurstöður Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) varpa skýru ljósi á alvarlega þróun…

    Ritstjórn

    27. apr 2026