Nýtt vottunarkerfi fyrir vinnustaði: „Í góðu lagi“

Höfundur

Ritstjórn

Fimmtudaginn 26. júni undirrituðu Sölufélag garðyrkjumanna, Báran stéttarfélag og Framsýn stéttarfélag samstarfssamning sín á milli um vottunarmerkið „Í góðu lagi”.

“Í góðu lagi” er nýtt vottunarkerfi sem staðfestir að vinnustaðir fari eftir kjarasamningum og almennum reglum vinnumarkaðarins. Aðilar samkomulagsins hafa unnið að því að þróa vottunarkerfi byggt á trausti, gagnsæi og sanngirni. Hugmyndin felst í því að sýna með skýrum hætti að vinnustaðir fari eftir kjarasamningum og þeim leikreglum sem gilda almennt á vinnumarkaði.

Framkvæmdin er að vinnustaðir eru heimsóttir og farið yfir þau gögn sem til þarf. Fyrir liggur metnaðarfullur verkferlill sem nær til allra þátta er viðkemur framsæknum vinnustöðum. Með þessu verkefni er byggð samvinna milli aðila sem leiðir til heilbrigðari vinnumarkaðar og bættra kjara launafólks.

Það er ekki á hverjum degi sem stéttarfélög fá beiðnir frá fyrirtækjum/samtökum sem vilja þróa svona verkefni í samstarfi við félögin sem ber að fagna.

Stofnuð var sameiginleg nefnd skipuð fulltrúum frá hlutaðeigandi stéttarfélögum og Sölufélagi garðyrkjumanna, sem vann að undirbúningi sérstakrar vottunar.

Verkefnið er virkilega spennandi og skemmtilegt og byggir upp jákvæð samskipti og samvinnu. Oft er slegin upp mynd af samskiptum atvinnurekenda og stéttarfélaga eins og barist sé á banaspjótum. Þetta eru sameiginlegir hagsmunir sem leiða til betri útkomu fyrir alla. Í fyrstu verður verkefnið tilrauna og þróunarverkefni afmarkað við grænmetisframleiðslu en vonir standa til að vottunin „Í góðu lagi“ geti náð útbreiðslu til fleiri greina ef vel tekst til enda um ákveðna fyrirmynd að ræða fyrir íslenskt atvinnulíf.

Þrjár garðyrkjustöðvar hafa nú farið formlega í gegnum vottunarferlið, garðyrkjustöðin Ártangi, Friðheimar og Hveravellir og tóku eigendur og forsvarsmenn þeirra á móti sínum vottunarstaðfestingum í dag.


Garðyrkjustöðin Ártangi, Friðheimar og Hveravellir taka á móti staðfestingu á vottuninni Í góðu lagi.

Guðlaugur Gauti Þorgilsson framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna og Halldóra Sigríður Sveinsdóttir formaður Báran stéttarfélags skrifa undir samstarfssamning.

Guðlaugur Gauti Þorgilsson framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna og Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýn stéttarfélags skrifa undir samstarfssamning.

Tengdar fréttir

  • Hver borgar fyrir heimsendinguna? 

    Heimsendingaþjónusta hefur aukist jafnt og þétt hérlendis sem og erlendis.…

    Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir

    22. des 2025

    Wolt merki
  • Jöfnun örorkubyrðar og víxlverkun

    Sameiginleg yfirlýsing ASÍ, SA og fjármálaráðuneytisins var undirrituð í dag.…

    Ritstjórn

    18. des 2025

  • ASÍ og BSRB telja „vaxtarplan“ ríkisstjórnar án jöfnuðar og sanngirni

    Alþýðusambandið og BSRB taka í meginatriðum undir markmið og framtíðarsýn…

    Ritstjórn

    10. des 2025