Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Pistill forseta ASÍ – Húsnæðisöryggi

Í upphafi covid faraldursins lagði ASÍ áherslu á nokkra þætti sem nauðsynlegt viðbragð við kreppunni. Þeir voru að tryggja afkomu, heilbrigðismál, húsnæðismál, menntun og réttlát umskipti og jöfnuður. Þetta hefur verið rauður þráður í okkar málflutningi síðan, enda hornsteinn lífsgæða vinnandi fólks og alls almennings. Nú þegar við siglum inn í nýtt ár munu einkum húsnæðismálin ráða úrslitum um hvernig til tekst í kjaraviðræðum næsta haust.

Í dag fer húsnæðismarkaðurinn og hækkun nauðsynja langt með að éta upp árangur síðustu kjarasamninga. Við erum óralangt frá þeirri stefnu Alþýðusambandsins að fólk greiði ekki nema 25% tekna sinna í húsnæðiskostnað. Sumir greiða svo mikið sem 80% tekna í húsaleigu og vextir fara nú hækkandi sem þýðir bara eitt: kjararýrnun. Sú rýrnun kemur verst við þau sem höllustum fæti standa og þau sem hafa þurft að spenna bogann hátt til að koma sér þaki yfir höfuð. Sú stefna sem rekin hefur verið, að láta hinn ósýnilega markað tryggja húsnæðisöryggi, er gjaldþrota. Húsnæðismarkaðurinn á ekki að vera gróðatækifæri fyrir fjárfesta eða verktaka og hann á ekki að vera undirstaða ofsahagnaðar í útlánum. Húsnæðismarkaðurinn á að tryggja húsnæðisöryggi – að fólk búi við góðar aðstæður á viðráðanlegum kjörum. Til þess að svo megi verða þarf margt að koma til.

Skilja þarf á milli viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi og styrkja þarf óhagnaðardrifin leigufélög. Koma þarf böndum á verðtrygginguna og dreifa ábyrgðinni á afborganaflökti á milli lánveitenda og lántaka. Það þarf að koma reglum á útleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna svo sú þjónusta gangi ekki freklega á húsnæðisöryggi. Nýta þarf tilfærslukerfin, vaxtabætur og húsaleigubætur, til að draga úr húsnæðiskostnaði þeirra tekjulægri og svo þarf að sjálfsögðu að gera stórátak í húsnæðisuppbyggingu með félagslega hugsun að leiðarljósi.

Það er verk að vinna og verkalýðshreyfingin mun ekki halda að sér höndum í þessu stærsta kjaramáli dagsins í dag, frekar en fyrri daginn. Í gegnum tíðina hafa verið gerð stór átök í húsnæðismálum í samstarfi við hreyfingu vinnandi fólks. Tími slíks átaks er runninn upp á ný.

Góða helgi,
Drífa

Author

Tengdar fréttir