Samstarfssamningur milli Einingar-Iðju og FVSA

Höfundur

Ritstjórn

Stéttarfélögin Eining-Iðja og Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis hafa undirritað samstarfssamning um nýtingu réttinda félagsmanna milli félaganna tveggja. Samningurinn mun gilda til að byrja með í eitt ár og verður endurskoðaður mánuði áður en hann rennur út. Það voru Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, og Eiður Stefánsson, formaður FVSA, sem undirrituðu samninginn.

Markmið samstarfsins er að auðvelda félagsmönnum aðgang að þeim réttindum sem þeir þegar hafa öðlast hjá öðru félaginu þegar þeir þurfa að færa sig milli félaga vegna breytinga á starfsvettvangi.

Samstarfið felur í sér samnýtingu iðgjalda félagsmanna félaganna vegna fræðslusjóðs, orlofssjóðs og sjúkrasjóðs félaganna.

Tilgangur samstarfsins er að telja saman réttindi félagsmanns hjá hvoru félaginu, í þeim tilgangi að félagsmaður þurfi ekki að bíða ávinnslutíma réttinda sinna heldur getur nýtt það sem þegar hefur áunnist hjá fyrra félagi og hinu nýja. Núverandi regla um 6 mánaða rétt eftir síðustu greiðslu gildir áfram en annars gildir sú regla að greitt hafi verið a.m.k. samtals 6 mánuði til beggja félaganna.

Fyrst félaga til að gera slíkan samning
Björn segir að félögin hafi í raun unnið á þessum nótum undanfarin ár en við ákváðum að setja þessar reglur á blað núna. „Ég veit ekki betur en að Eining-Iðja og FVSA séu þar með fyrst félaga innan ASÍ til að gera slíkan samning. Þetta er mikill gleðidagur því með þessu erum við að stíga stórt skref í að tryggja að réttindi fólks detti ekki niður þegar viðkomandi flytur sig á milli félaganna. Ég vona að svona samningur verði gerður við fleiri félög sem fyrst. Samningurinn mun líka verða til þess að við gerum meiri kröfu á að félagsmenn verði í þeim félögum sem hefur samningsumboð fyrir viðkomandi.“

Tímamótasamningur
Eiður segir að þetta sé tímamótasamningur. „Þetta gerir félagsmönnum auðveldara að fara á milli félaga og vera í réttu stéttarfélagi sem skiptir gríðarlegu miklu máli. Þá er ég að tala um að vera í því stéttarfélagi sem er með þann kjarasamning sem starfsmaðurinn er að fá greidd laun eftir. Loksins kláruðum við þetta og ég vona að þetta sé upphafið af fleiri svona samningum á milli allra stéttarfélaga.“

Tengdar fréttir

  • NÁMSKEIÐIÐ UNGIR LEIÐTOGAR HALDIÐ Í ÞRIÐJA SINN

    Ungir leiðtogar er námskeið ætlað ungu fólki innan verkalýðshreyfingarinnar. Áhersla…

    Ritstjórn

    20. jan 2025

    Ungir leiðtogar
  • Kvennaráðstefna ASÍ 2024 

    Ryðjum hindrunum úr vegi – kvenfrelsi og stéttabarátta. Kvennaráðstefna ASÍ…

    Ritstjórn

    14. nóv 2024

  • Ekki er allt gull sem glóir

    Göran Dahlgren og Lisa Pelling skrifa: Það var okkur ánægja…

    Ritstjórn

    14. okt 2024