SGS félögin samþykktu kjarasamning við sveitarfélögin með miklum meirihluta

Höfundur

Ritstjórn

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 17 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir starfsmenn sveitarfélaga liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta. Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 16 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 3. til 10. febrúar. Á kjörskrá voru 4.197 manns og kjörsóknin var 32,83%.

Já sögðu 80,55%
Nei sögðu 16,33%.

3,12% tóku ekki afstöðu.

Niðurstöðu í einstökum félögum má sjá hér.

Samningurinn, sem undirritaður var 16. janúar síðastliðinn, er því samþykktur hjá eftirfarandi félögum:
AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.

Tengdar fréttir

  • Aðgerðir tengdar kjarasamningum taka gildi

    Við gerð kjarasamninga gerði verkalýðshreyfingin kröfur á stjórnvöld um aðgerðir…

    Ritstjórn

    5. jún 2024

  • Mikill stuðningur við kjarasamning SGS og SA

    Kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur verið…

    Ritstjórn

    19. des 2022

  • Vörukarfa ASÍ hækkaði í 6 af 8 verslunum á 6

    Á 6 mánaða tímabili, frá lokum mars 2021 fram í…

    Ritstjórn

    15. okt 2021