Ný skýrsla Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins sýnir að fjórir af hverjum tíu foreldrum eiga erfitt með að ná endum saman og geta ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum.
Staða launafólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB sem eiga börn á grunn- og/eða leikskólaaldri er til skoðunar í nýrri skýrslu Vörðu. Niðurstöðurnar sýna að hátt hlutfall foreldra býr við slæma fjárhagsstöðu og fjórðungur þeirra er á leigumarkaði.
Staða einhleypra foreldra áberandi verst
Mikill munur er á stöðu foreldra eftir því hvort þeir eru í sambúð eða einhleypir. Mun hærra hlutfall einhleypra foreldra býr við slæma fjárhagsstöðu. Sex af hverjum tíu eiga erfitt með að ná endum saman og nánast sama hlutfall gæti ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Innan við helmingur einhleypra foreldra er í eigin húsnæði (47%) en sama á við um 72% foreldra sem eru í sambúð. Andleg líðan einhleypra foreldra mælist auk þess verst meðal þeirra hópa sem skoðaðir voru en tæplega helmingur mælist við slæma andlega heilsu (46%).
Lágt hlutfall innflytjendaforeldra er í eigin húsnæði
Einungis 37% innflytjendaforeldra er í eigin húsnæði og fjárhagsstaða þeirra mælist verri, þar sem meira en helmingur á erfitt með að ná endum saman og tæplega helmingur getur ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum.
Helmingur einhleypra foreldra býr við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum
Alls býr þriðjungur foreldra við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Fjórðungur foreldra í sambúð býr við slíkan skort. Hlutfallið er áberandi hátt meðal einhleypra foreldra en helmingur þeirra býr við skilgreindan skort á félags- og efnislegum gæðum og sama á við um 44% innflytjendaforeldra.
Einungis ríflega þriðjungur foreldra eru mjög eða frekar sammála því að þjónusta sveitarfélagsins styðji við barnafjölskyldur
Hátt hlutfall foreldra hefur vegna fjárskorts ekki tök á að greiða kostnað vegna sumarnámskeiða, skipulagðra tómstunda og skólaferðalaga eða annarra viðburða tengdu skólastarfi sem er oft og tíðum á höndum sveitarfélaganna.
Fjórir af hverjum tíu einhleypum foreldrum geta ekki greitt kostnað vegna skipulagðra tómstunda og sumarnámskeiða
Einnig er algengara að innflytjendaforeldrar hafi ekki ráð á kostnaði vegna þessara þátta.
Fjórðungur innflytjendaforeldra og einhleypra foreldra getur ekki greitt kostnað vegna frístundar og fimmtungur þeirra getur ekki greitt fyrir eins langan vistunartíma í leikskóla og hentar eða leikskólagjöld
Þrátt fyrir að gögnin sem skýrslan byggir á hafi verið aflað í spurningakönnun sumarið 2025, áður en stærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg, breytti gjaldskrá sinni í leikskólum, eru 12% allra foreldra sem hafa ekki ráð á eins löngum vistunartíma í leikskóla og hentar eða á leikskólagjöldum. Hlutfallið er hærra meðal einhleypra foreldra og innflytjendaforeldra.
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Í könnun Vörðu voru foreldrar barna á leik- og grunnskólaaldri spurð um stöðu á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði sem og fjárhagsstöðu, þjónustu sveitarfélagsins auk spurninga um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og verkskiptingu meðal sambúðarfólks. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust. 5.886 svarendur voru með barn á heimili í leik- og/eða grunnskóla og eru svör þeirra til grundvallar í rannsókninni.
Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar Skýrsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:





