Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Verð hækka víða – mest hjá Samkaupum

Verðlag á matvöru hefur tekið að hækka hratt, um 0,65% milli mánaða eða 9,2% á ársgrundvelli, samkvæmt nýjustu mælingum verðlagseftirlits ASÍ.

Hækkanirnar eru mestar í verslunum Samkaupa; Kjörbúðinni, Nettó og Krambúðinni. Verðlag lækkar í Heimkaupum, einni verslana. Aðrar verslanir eru á svipuðu róli og í fyrri mánuðum.

Margt hækkar mikið

Hækkanir mánaðarins ná yfir marga vöruflokka. Í fyrri mánuðum hefur verð á súkkulaði til dæmis hækkað sérlega mikið, en nú er hækkunin komin inn í aðalréttinn — ferskvöru, niðursoðið grænmeti og þvíumlíkt. Til dæmis má nefna:

  • Bonduelle grænar baunir hafa hækkað um 30% í Nettó, úr 299 í 389kr. Þær hækka um 20% í Krónunni. Bonduelle smágulrætur hækka um 29% og belgbaunir um 20% í Nettó.
  • Ora grænar baunir hækka um 12% í Nettó en um 2,6% í Bónus og Krónunni. Frá maí hafa Ora sneiddir sveppir í dós hækkað um 12% í Nettó, 14% í Krambúðinni og 20% í Kjörbúðinni.
  • Pottagaldra karrý hækkar um 5,7% í Nettó og um 4,2% í Bónus og Krónunni. Pottagaldra kúmín hækkar um 12% í Krónunni, 10% í Hagkaup og 6,4% í Nettó.
  • Sellerí hækkar um 54% í Krónunni, 23% í Hagkaup og 9,1% í Nettó.
  • Bökunarkartöflur hækka um 20% í Krónunni.
  • Pfanner ACE safi hækkar um 33-5% í Kjörbúðinni, Krambúðinni og Nettó, 4,2% í Bónus og 3,6% í Hagkaup.
  • G-mjólk, lítil ferna, hækkar um 9,6% í Kjörbúðinni og 5,9% í Nettó en stendur í stað í Heimkaupum, Hagkaup, Bónus og Krónunni.
  • MS Nýmjólk hækkar um 1% í Kjörbúðinni og Nettó en stendur í stað í Heimkaupum, Hagkaup, Bónus og Krónunni.

Vörur frá Freyju hafa einnig hækkað milli mánaða, og fylgja þar í spor annarra súkkulaðiframleiðenda. Eins og verðagseftirlitið greindi frá í lok mars höfðu Nói Síríus og Góa-Linda þá hækkað verð sín en Freyja ekki. Nú hafa vörur Freyju hækkað líka, til dæmis hækkar verð súkkulaðiplötu með Djúpum um 16% í Nettó, 14% í Krónunni og 11% í Hagkaup. Stór Freyju Rís hækkar um 22% í Bónus, 21% í Krónunni, 20% í Nettó og 11% í Hagkaup.

Frá undirritun kjarasamninga

Verðlag í matvöruverslunum hefur hækkað um 1,45% frá undirritun kjarasamninga, sem jafngildir 4,0% á ársgrundvelli. Um helmingur hækkunarinnar hefur orðið á undanförnum vikum og skorðast kippurinn að miklu leyti við verslanir Samkaupa. Þegar stærstu fjórar verslanir landsins eru skoðaðar sést að hækkunartaktur verðlags í Bónus, Krónunni og Hagkaup hefur verið á bilinu 0-0,6% á mánuði, og sama gilti um Nettó þar til nú.

Þegar fleiri verslanir eru skoðaðar má sjá eftirfarandi mynstur; verðlag í Nettó, Kjörbúðinni og Krambúðinni hefur hækkað hraðast undanfarnar vikur, en það hefur lækkað í Heimkaupum. Aðrar búðir eru á svipuðu róli og undanfarna mánuði.

Á grafinu eru verslanir Samkaupa merktar með bláu, Heimkaup með rauðu og aðrar með svörtu.

Um könnunina

Verðlagsbreytingar eru reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal.

Við verðsamanburð eru skoðuð meðalverð sérhverrar vöru yfir mánuðinn (eða 6-13. mars þegar borið er saman við undirritun kjarasamninga) og borin saman við meðalverð mánuðarins á undan. Breytingar eru svo vegnar útfrá mikilvægi vöruflokka. Fjöldi samanburða í hverjum mánuði er um eða yfir 20.000.

Author

Tengdar fréttir