Yfirlýsing frá VR vegna breytinga á stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

Höfundur

Ritstjórn

VR hefur náð samkomulagi við Lífeyrissjóð verzlunarmanna og fráfarandi stjórnarmenn lífeyrissjóðsins sem tilnefndir voru af VR.

Þeir stjórnarmenn sem nú sitja í stjórninni í nafni VR munu láta af störfum og í stað þeirra taka sæti í stjórninni nýir stjórnarmenn samkvæmt ákvörðun VR frá 14. ágúst síðastliðnum. Dómsmál sem rekið hefur verið vegna tilnefningar í stjórnina verður fellt niður.

VR fellst á sjónarmið sem fram hafa komið af hálfu lífeyrissjóðsins og Fjármálaeftirlitsins um að óæskilegt sé að þeir sem fara með vald til tilnefningar í stjórn sjóðsins hlutist til um ákvarðanir sjóðsstjórnar með því að skipta út stjórnarmönnum áður en kjörtímabili þeirra lýkur og vonar að slík inngrip heyri nú sögunni til.

VR lýsir yfir mikilli ánægju með þessi málalok enda nauðsynlegt að ljúka deilu VR við sjóðinn og Fjármálaeftirlitið sem fyrst og koma ró á starfsemi sjóðsins. Allir aðilar hafa haft hagsmuni sjóðsins í fyrirrúmi og þessi málalok eru gerð í sátt allra aðila með framtíð sjóðsins að leiðarljósi.

VR þakkar fráfarandi stjórnarmönnum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir vel unnin störf í þágu sjóðsins og félagsins og óskar þeim velfarnaðar.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026