Alþjóðadagur fatlaðs fólks

Höfundur

Ritstjórn

Fólk með fötlun mun áfram verða undir á vinnumarkaði og verða óhóflega fyrir áhrifum af fátækt nema settar verði skuldbindandi reglur sem tryggja réttindi þeirra og stöðu, segir í yfirlýsingu Evrópusambands launafólks (ETUC), í tilefni þess að 3. desember ár hvert er alþjóðadagur fatlaðs fólks.

Gögn frá ESB sýna að almennt er um 51% fólks með fötlun í starfi, samanborið við 75% af heildaríbúum innan ESB. Sömuleiðis býr um 29% fatlaðs fólks við fátæktarhættu samanborið við 18% af heildaríbúum.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur birt stefnu um réttindi fatlaðs fólks, sem inniheldur aðgerðaáætlun til að bæta stöðu hópsins á vinnumarkaði. Hún felur meðal annars í sér frumkvæði um hæfileg aðlögunarúrræði á vinnustöðum og breytingar á ráðningaraðferðum.

Aðgerðirnar í áætluninni eru þó aðeins leiðbeinandi og reiða sig því einnig á velvilja atvinnurekenda. ETUC hvetur því ESB til að leggja fram bindandi aðgerðir til að bæta starfs- og lífsskilyrði fatlaðs fólks sem feli m.a. í sér:

  • Að tryggja hæfileg aðlögunarúrræði á vinnustað
  • Að halda fólki með fötlun í starfi og koma í veg fyrir fötlun sem tengist langvinnum sjúkdómum
  • Að veita valkosti í atvinnuúrræðum fyrir fatlað fólk
  • Að tryggja samræmi launa og bóta vegna fötlunar
  • Að styðja við hreyfanleika með því að tryggja áframhaldandi rétt fatlaðs fólks til bóta þegar það flytur til annars ESB-lands til að vinna

Tengdar fréttir

  • Ofbeldi í nánum samböndum

    Á Kvennaári 2025 hafa á sjötta tug samtaka sameinast um…

    Steinunn Bragadóttir

    24. nóv 2025

  • Tvöföld mismunun kvenna í hópi innflytjenda

    Á Kvennaári 2025 hafa á sjötta tug samtaka sameinast um…

    Steinunn Bragadóttir

    30. okt 2025

  • Nútíma kvennabarátta – Málþing um stöðu kvenna af erlendum uppruna

    Alþýðusamband Íslands stóð fyrir vel sóttu málþingi um stöðu kvenna…

    Ritstjórn

    24. okt 2025