Alþjóðadagur fólks með fötlun

Höfundur

Ritstjórn

Fólk með fötlun mun áfram verða undir á vinnumarkaði og verða óhóflega fyrir áhrifum af fátækt nema settar verði skuldbindandi reglur sem tryggja réttindi þeirra og stöðu, segir í yfirlýsingu Evrópusambands launafólks (ETUC), í tilefni þess að 3. desember ár hvert er alþjóðadagur fólks með fötlun.

Gögn frá ESB sýna að almennt er um 51% fólks með fötlun í starfi, samanborið við 75% af heildaríbúum innan ESB. Sömuleiðis býr um 29% fólks með fötlun við fátæktarhættu samanborið við 18% af heildaríbúum.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur birt stefnu um réttindi fólks með fötlun, sem inniheldur aðgerðaáætlun til að bæta stöðu hópsins á vinnumarkaði. Hún felur meðal annars í sér frumkvæði um hæfileg aðlögunarúrræði á vinnustöðum og breytingar á ráðningaraðferðum.

Aðgerðirnar í áætluninni eru þó aðeins leiðbeinandi og reiða sig því einnig á velvilja atvinnurekenda. ETUC hvetur því ESB til að leggja fram bindandi aðgerðir til að bæta starfs- og lífsskilyrði fólks með fötlun sem feli m.a. í sér:

  • Að tryggja hæfileg aðlögunarúrræði á vinnustað
  • Að halda fólki með fötlun í starfi og koma í veg fyrir fötlun sem tengist langvinnum sjúkdómum
  • Að veita valkosti í atvinnuúrræðum fyrir fólk með fötlun
  • Að tryggja samræmi launa og bóta vegna fötlunar
  • Að styðja við hreyfanleika með því að tryggja áframhaldandi rétt fólks með fötlun til bóta þegar það flytur til annars ESB-lands til að vinna

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Fjár­magnið á­sælist heilsu­gæsluna

    Viðskiptaráð birti í morgun, 12. mars, grein þar sem fjallað…

    Steinunn Bragadóttir

    13. mar 2026

  • Skapandi gervigreind (Gen AI) hefur meiri áhrif á stöðu kvenna

    Skapandi gervigreind (GenAI) er að endurmóta heim vinnunnar og hefur…

    Ritstjórn

    10. mar 2026