Fulltrúar ASÍ og stéttarfélaganna sóttu námskeið um misneytingu aðflutts launafólks

Höfundur

Ritstjórn

Fulltrúar ASÍ og stéttarfélaga sóttu í mars námskeið í Helsinki um leiðir til að greina misneytingu aðflutts launafólks (e. Solutions for Identifying Migrant Worker Exploitation).

Námskeiðið var haldið af NIVA í samstarfi við finnsku rannsóknarstofnunina HEUNI og komu þar saman sérfræðingar frá stéttarfélögum, vinnueftirliti, lögreglu og félagasamtökum sem þjónusta þolendur.

Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ, flutti fyrirlestur á námskeiðinu um baráttuna gegn misneytingu launafólks á Íslandi. Hún fjallaði meðal annars um hlutverk stéttarfélaga í baráttunni gegn misneytingu og formbundið samstarf aðila vinnumarkaðarins við opinberar stofnanir.

Á námskeiðinu var einnig fjallað um hvernig Norðurlöndin takast á við misneytingu launafólks með ólíkum hætti og að erfitt sé að tala um eitt sameiginlegt „norrænt módel“ í því samhengi.

Í Finnlandi og Noregi er það opinbert vinnueftirlit sem hefur eftirlit með kjörum launafólks en í Danmörku og Svíþjóð sinna stéttarfélög því hlutverki. Á Íslandi sjá stéttarfélög um eftirlit og framfylgd kjarasamninga, líkt og í Danmörku og Svíþjóð, en auk þess er formbundið samstarf við opinberar eftirlitsstofnanir.

Jafnframt var fjallað um aðferðir í vinnustaðaeftirliti, viðtalstækni og helstu vísbendingar um misneytingu á vinnustöðum, svo eitthvað sé nefnt.

Nánar má lesa um námskeiðið á vef HEUNI: https://heuni.fi/-/heuni-and-niva-training-on-identifying-labour-exploitation#248076fa

Tengdar fréttir

  • ASÍ hafnar frumvarpi um innviðafélag: Of víðtækar heimildir og óljós

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) getur ekki stutt frumvarp um stofnun innviðafélags…

    Ritstjórn

    21. apr 2026

  • Atvinnuleysi minnkar milli mánaða en er meira en í fyrra 

    Nýjar tölur úr mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar sýna að skráð atvinnuleysi var 4,8%…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026